Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 15. maí 2019 15:45
Arnar Daði Arnarsson
Ingiberg Ólafur og Eiður Gauti í Ými (Staðfest)
Ingiberg Ólafur leikur með Ými í sumar.
Ingiberg Ólafur leikur með Ými í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ingiberg Ólafur Jónsson og Eiður Gauti Sæbjörnsson hafa gengið í raðir Ýmis frá HK og leika því með liðinu í 4. deildinni í sumar.

Báðir léku þeir með HK í Inkasso-deildinni í fyrra er liðið tryggði sér sæti í Pepsi Max-deildinni.

Ingiberg skoraði tvö mörk í 13 leikjum með HK í Inkasso-deildinni síðasta sumar en hann hefur einnig leikið með Fram, Þrótti og Fjarðabyggð.

Eiður Gauti sem er fæddur árið 1999 hefur leikið með HK síðustu þrjú sumur. Hann lék fjóra leiki með liðinu síðasta sumar.

Auk þeirra hefur Ýmir einnig fengið til sín þá Bjart Blæ Gunnlaugsson frá KH og Brynjólf Bjarnason frá Kríu.

Ýmir leikur í A-riðli 4. deildar og mætir Árborg í fyrsta leik á föstudagskvöld.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner