Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 15. maí 2021 20:31
Victor Pálsson
Fullyrða að Zidane yfirgefi Real eftir tímabilið
Mynd: Getty Images
Goal.com fullyrðir það í kvöld að Zinedine Zidane muni yfirgefa lið Real Madrid eftir tímabilið.

Gengi Real á leiktíðinni hefur ekki verið nógu gott en liðið á enn möguleika á að vinna spænsku deildina.

Real datt úr leik í undanúrslitum Meistaradeildarinnar gegn Chelsea sem spilar við Manchester City í úrslitum.

Samkvæmt Goal tjáði Zidane leikmönnum Real þetta um síðustu helgi fyrir leik gegn Sevilla sem endaði 2-2.

Það væri í annað sinn sem Zidane hættir sem stjóri Real en hann vann þrjá Meistaradeildartitla í röð með félaginu í sinni fyrstu dvöl.

Real spilar við Athletic Bilbao á morgun og endar tímabilið á leik gegn Villarreal þann 23. maí.
Athugasemdir
banner
banner