Erling Braut Haaland er dýrkaður í Dortmund en dvöl hans þar er lokið og kominn tími á næsta skref - Manchester City.
Haaland fetar þar með í fótspor föðurs sins þó aðstæður hjá félaginu séu talsvert öðruvísi í dag en þær voru á tímum Alf-Inge (Haaland).
Erling kvaddi stuðningsmenn Dortmund innan vallar á dögunum en einnig utan hans þar sem hann fór á skemmtistað og skoppaði um með jafnöldrum sínum.
Skemmtilegt myndband hefur farið í dreifingu þar sem hann sést hoppa um skemmtistað klæddur í æfingagalla Dortmund, hegðun sem gæti hafa jafnframt vakið einhverjar spurningar.
Athugasemdir