Fotbolti.net
15.05.23 - 22:05
Ívan Guðjón Baldursson

Njarðvík lánar Bergþór til Sandgerðis (Staðfest)

Njarðvík lánar Bergþór til Sandgerðis (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

Reynir Sandgerði er búinn að staðfesta komu Bergþórs Inga Smárasonar á lánssamningi frá Njarðvík sem gildir út tímabilið.

Bergþór Ingi, fæddur 1994, er einn af reynslumestu leikmönnum Njarðvíkurliðsins þar sem hann hefur skorað 49 mörk í 220 keppnisleikjum fyrir félagið.

Bergþór skoraði 4 mörk í 21 leik í 2. deildinni í fyrra er Njarðvík rúllaði yfir mótið, en árið þar áður setti Bergþór 6 mörk í deildinni.

Hann hefur leikið með Njarðvík allan meistaraflokksferilinn að undanskildu sumrinu 2016 þegar hann fór til Reynis á lánssamningi. Þar lék hann í 3. deildinni og skoraði 3 mörk í 10 leikjum.

Sandgerðingar féllu úr 2. deildinni í fyrra og leika því í 3. deildinni í sumar, þar er liðið komið með þrjú stig eftir tvær fyrstu umferðirnar.

„Stjórn knattspyrnudeildar Reynis býður Begga velkominn aftur í Reynistreyjuna og hlakkar til að sjá hann á vellinum í sumar," segir í tilkynningu frá Sandgerði.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.