Man City gerir tilboð í Olmo - Barcelona reynir líka að fá spænska landsliðsmanninn - Wan-Bissaka vill ekki fara til West Ham
   mið 15. maí 2024 16:08
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Umboðsmaður Tuchel fundaði með Bayern
Thomas Tuchel.
Thomas Tuchel.
Mynd: EPA
Stjóraleit þýska stórveldisins Bayern München hefur gengið hörmulega. Xabi Alonso, Ralf Rangnick og Julian Nagelsmann höfnuðu allir félaginu og vildu frekar vera áfram í því starfi sem þeir nú gegna.

Bayern reyndi þá að fá Oliver Glasner frá Crystal Palace en fékk skýr skilaboð um að hann væri ekki fáanlegur. Endurkoma Hansi Flick er þá ekki í kortunum.

Í dag hafa svo fréttir borist af því að Bayern sé að reyna að sannfæra Thomas Tuchel um að halda áfram. Umboðsmaður Tuchel sást í höfuðstöðvum Bayern núna áðan.

Bayern tilkynnti það í febrúar að Tuchel væri á förum eftir tímabilið en félagið er að fara titlalaust í gegnum þessa leiktíð - ótrúlegt en satt. Það virtist ómögulegt að samstarfið myndi halda áfram, en núna er það kannski að breytast.

Tuchel er með stuðning úr búningsklefa Bayern þar á meðal frá Manuel Neuer og Thomas Muller, sem hafa verið lengi hjá félaginu. Eric Dier og Harry Kane eru líka miklir aðdáendur hans.

Tuchel hefur upp á síðkastið verið orðaður við Manchester United og er hann efstur í veðbönkum ef það starf losnar, en núna er spurning hvort að hann verði áfram með Bayern eða ekki.


Athugasemdir
banner
banner
banner