Skrifar Carrick undir um helgina? - „Skýrist mjög bráðlega“

Benjamin Sesko og Michael Carrickþ

Mynd: EPA

Benjamin Sesko og Michael Carrickþ

Mynd: EPA
Enskir fjölmiðlar segja að Manchester United sé búið að leggja fram við Michael Carrick að hann geri tveggja ára samning sem innihaldi möguleika á einu ári til viðbótar. Einhverjir halda því fram að undirskrift gæti farið fram um helgina.
Carrick vildi þó lítið segja um framtíðina þegar hann var spurður á fréttamannafundi í morgun.

TENGT EFNI
Skrifar Carrick undir um helgina? - „Skýrist mjög bráðlega“
„Ég skil að þið spyrjið, það eru tveir leikir eftir og ég get ekki sagt mikið meira. Framtíð mín skýrist mjög bráðlega. Það var vitað að þetta myndi ekki koma í ljós fyrr en í lok tímabils, jafnvel eftir tímabilið," segir Carrick.
Manchester United fær Nottingham Forest í heimsókn á sunnudaginn en Carrick er einn af þeim sem eru tilnefndir sem stjóri tímabilsins.
„Að taka þetta stóra skref og komast aftur í Meistaradeildina er gott. Við erum ánægðir með þá vinnu sem við höfum framkvæmt hingað til."
Varðandi stöðuna á hópnum segir Carrick að Casemiro sé klár í leikinn á sunnudag en ólíklegt sé að sóknarmaðurinn Benjamin Sesko geti spilað.