þri 15. júní 2021 20:10
Victor Pálsson
"Mount gæti orðið stórstjarna hjá Leeds"
Mynd: Getty Images
Mason Mount gæti orðið 'stórstjarna' hjá Leeds að sögn Kalvin Phillips, liðsfélaga hans hjá enska landsliðinu.

Phillips var beðinn um að nefna einn mann á nafn sem hann myndi helst vilja sjá í Leeds þar sem hann er samningsbundinn.

Mount varð fyrir valinu en hann er á mála hjá Chelsea og leikur með Phillips á EM alls staðar þessa stundina.

„Þetta er erfið spurning en ég myndi örugglega segja Mason Mount," sagði Phillips.

„Ég og Mason náum nokkuð vel saman. Þetta er samt um hvernig hann spilar, hvernig hann pressar og þær stöður sem hann kemst í, það myndi henta Leeds."

„Hann myndi vinna stjórann á sitt band strax, hann yrði örugglega stórstjarna ef hann kæmi til Leeds."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner