KFS fær Jón Jökul frá ÍBV (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KFS er búið að tryggja sér gríðarlega mikinn liðsstyrk fyrir átökin í 3. deildinni í sumar. Jón Jökull Hjaltason er 22 ára gamall og lék hann 18 leiki með ÍBV í Lengjudeildinni sumarið 2021.
Hann hefur þó verið að glíma við erfið meiðsli og lítið tekist að spreyta sig í rúmt ár. Hann kemur til KFS á lánssamningi og ætlar að nýta tækifærið til að ná sér í mikilvægan spiltíma og hjálpa liðinu í fallbaráttunni.
Í heildina á Jón 30 leiki að baki í Lengjudeildinni, með ÍBV og Þrótti Vogum, og vonast til að ná sér á fullt strik aftur og spila í efstu deild.
Til gamans má geta að Hjalti Jónsson, faðir Jóns Jökuls, lék um árabil með ÍBV á gullaldarárunum um síðustu aldamót.
KFS er einu stigi frá fallsæti sem stendur, með sex stig eftir sjö fyrstu umferðirnar.



