Fotbolti.net
15.06.23 - 19:38
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Rudi Garcia tekinn við Napoli (Staðfest)

Rudi Garcia tekinn við Napoli (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Rudi Garcia hefur verið ráðinn stjóri Napoli en hann tekur við af Luciano Spalletti sem hætti eftir að hafa gert Napoli að ítölskum meisturum á síðasta tímabili.

Þessi ráðning kemur á óvart en Garcia þótti ekki líklegastur til að taka við liðinu en hann var ásamt Paulo Sousa og Christophe Galtier á lista yfir þá sem gætu tekið við.

Garcia var sá eini sem var án félags sem gæti hafa verið stór ástæða fyrir ráðningunni.

Hann stýrði Cristiano Ronaldo og félögum í Al-Nassr síðast. Þessi 59 ára gamli Frakki þekkir til ítalska boltans en hann stýrði Roma frá 2013-2016.

„Ég hef þá ánægju að tilkynna, eftir að hafa kynnst honum og eytt tíma með honum síðustu tíu daga, að Rudi Garcia verður næsti stjóri Napoli," sagði Aurelio De Laurentiis forseti félagsins áður en félagið svo formlega tilkynnti komu Frakkans.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.