Fotbolti.net
15.06.26 - 10:51
Kári Snorrason

Jón Þór skrifaði undir tveggja ára samning hjá Stjörnunni

Jón Þór skrifaði undir tveggja ára samning hjá Stjörnunni
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jón Þór Hauksson var tilkynntur sem nýr þjálfari Stjörnunnar síðastliðinn laugardag eftir að Jökull Elísabetarson var látinn taka poka sinn.

Í tilkynningu Stjörnunnar kom ekki fram hve langur samningur Jóns væri. Í samtali við Fótbolta.net fyrr í morgun staðfesti Jón Þór að um tveggja ára samning væri að ræða.
Jón Þór tekur við Stjörnunni (Staðfest)
TENGT EFNI

Jón Þór tekur við Stjörnunni (Staðfest)

Gengi Stjörnunnar hefur verið langt undir væntingum á tímabilinu. Liðið situr í níunda sæti Bestu deildarinnar með tíu stig. Þá féll liðið úr leik í Mjólkurbikarnum í síðustu viku eftir tap gegn Aftureldingu í 8-liða úrslitum.

Jón Þór kemur til félagsins frá Vestra þar sem hann var hluti af þjálfarateyminu. Hann þekkir Garðabæinn vel en hann var aðstoðarþjálfari Stjörnunnar tímabilið 2018.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.