Fotbolti.net
15.07.20 - 22:12
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Arteta: Engin töfrabrögð hjá Klopp

Arteta er ánægður með vinnuframlag sinna leikmanna.

Arteta er ánægður með vinnuframlag sinna leikmanna.

Canon

Mynd: Getty Images

Liverpool tapaði gegn Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Mistök frá Alisson og Virgil van Dijk gerðu sjaldséð mistök sem kostuðu Liverpool. Sigur Arsenal var mjög óvæntur og ef tölfræðin er skoðuð er ótrúlegt að Liverpool hafi ekki unnið, mistökin dýrkeypt.
„Það er risastórt bil milli Arsenal liðsins og Liverpool liðsins og það sést. Það þarf að bæta liðið með gæðum og við þrufum stærri hóp, það er áskorun," sagði Mikel Arteta, stjóri Arsenal, í kvöld.

„Ég er stoltur að viljinn og vinnslan í liðunum var svipuð því þannig hefur það ekki verið. Við þurfum tíma til að brúa bilið varðandi gæðin."

„Það sést hvernig Liverpool bygir sitt lið og það eru engin töfrabrögð. Ég hef áhyggjur af því að peningurinn sem til er fyrir nýjum leikmönnum sé ekki nægur,"
bætti Arteta við.

Arsenal er þremur stigum frá Wolves eftir sigurinn í kvöld.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.