Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   mið 15. júlí 2020 16:30
Magnús Már Einarsson
Dortmund lætur Schurrle fara
Mynd: Getty Images
Þýska félagið Borussia Dortmund hefur ákveðið að rifta samningi við kantmanninn Andre Schurrle.

Hinn 29 ára gamli Schurrle kom til Dortmund árið 2016 en hann átti eitt ár eftir af samningi sínum við félagið.

Schurrle hefur leikið 54 leiki með Dortmund en hann fór einnig til Fulham á láni sem og Spartak Moskvu í Rússlandi.

Schurrle var á láni í Rússlandi á nýliðnu tímabili en hann hefur ekkert spilað síðan í desember vegna meiðsla.

Á ferli sínum hefur Schurrle einnig leikið með Wolfsburg og Chelsea þar sem hann varð enskur meistari árið 2015.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner