Ásgeir hjá KA til 2025 (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Ásgeir Sigurgeirsson fyrirliði KA er búinn að skrifa undir nýjan þriggja ára samning við félagið.
Ásgeir hefur verið lykilmaður í spennandi liði KA undanfarin ár og á 127 leiki að baki fyrir félagið í deild og bikar, 25 ára gamall. Hann hóf ferilinn með Völsungi og hélt svo út til Stabæk í Noregi sem lánaði hann til KA sumarið 2016.
Ásgeir hefur verið leikmaður KA síðan þá og mikil gleðitíðindi fyrir félagið að hann ætli að búa áfram á Akureyri.
„Ekki nóg með að vera gríðarlega öflugur á vellinum þá er Geiri til fyrirmyndar utan vallar og tekur virkan þátt í starfi félagsins og alveg ljóst að það eru gríðarlega jákvæðar fréttir fyrir okkur KA-menn að njóta áfram krafta hans næstu árin," segir meðal annars í yfirlýsingu á vefsíðu KA.
