Fotbolti.net
15.07.22 - 17:40
Ívan Guðjón Baldursson

Burnley fær Maatsen frá Chelsea og Cullen (Staðfest)

Burnley fær Maatsen frá Chelsea og Cullen (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Burnley er búið að krækja í tvo leikmenn fyrir komandi átök í Championship deildinni og nokkuð ljóst að félagið ætlar sér aftur upp í deild þeirra bestu.

Vinstri bakvörðurinn Ian Maatsen er kominn á eins árs lánssamningi frá Chelsea. 

Maatsen er tvítugur og gerði góða hluti að láni hjá Charlton og Coventry undanfarin misseri og hefur mikinn áhuga á að starfa með Vincent Kompany.

Maatsen var lykilmaður í U17 liði Hollands sem vann EM 2019 og á fimm leiki að baki fyrir U21 landsliðið.

Bakvörðurinn efnilegi, sem getur einnig leikið framarlega á kantinum, á tvö ár eftir af samningi sínum við Chelsea.

Þá er írski landsliðsmaðurinn Josh Cullen búinn að skrifa undir þriggja ára samning við félagið eftir að hafa spilað undir stjórn Kompany hjá Anderlecht.

Cullen er 26 ára gamall og ólst upp hjá West Ham þar sem hann kom þó aðeins við sögu í þremur úrvalsdeildarleikjum.

Kaupverðið er ekki gefið upp en ekki talið fara yfir 3 milljónir punda.

Cullen er varnarsinnaður miðjumaður og á 20 leiki að baki fyrir írska landsliðið. Hann hefur áður spilað fyrir Bradford, Bolton og Charlton sem lánsmaður og á 46 leiki að baki í Championship deildinni.

Burnley fær Maatsen frá Chelsea og Cullen (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.