Fotbolti.net
15.07.22 - 14:07
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
- Crewe

Christian Eriksen í Man Utd (Staðfest)

Eriksen í leik á móti Íslandi.

Eriksen í leik á móti Íslandi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Danski landsliðsmaðurinn Christian Eriksen er orðinn leikmaður Manchester United.
Eriksen kemur til félagsins á frjálsri sölu eftir að hafa leikið með Brentford á síðustu leiktíð.

Eriksen hné niður í leik með Danmörku á EM í fyrra, fékk hjartastopp og í kjölfarið var græddur í hann bjargráður til að meðhöndla lífshættulegar hjartsláttartruflanir. Eriksen var samningsbundinn Inter en á Ítalíu er ekki leyfilegt að spila með bjargráð og því samdi hann við Brentford eftir áramót.

Hann spilaði afskaplega vel með Brentford og núna er Man Utd búið að krækja í hann.

„Manchester United er sérstakt félag og ég get ekki beðið eftir því að byrja," segir Eriksen.

Eriksen er annar leikmaðurinn sem Man Utd fær til sín í sumar. Hinn var vinstri bakvörðurinn Tyrell Malacia sem kom frá Feyenoord í Hollandi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.