Fotbolti.net
15.07.22 - 18:20
Ívan Guðjón Baldursson

Jordan Damak aftur til KF (Staðfest)

Jordan Damak aftur til KF (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jordan Damachoua, betur þekktur sem Jordan Damak, er genginn aftur til liðs við KF eftir þriggja ára fjarveru.

Damak er gríðarlega hress varnarmaður sem flutti til Íslands fyrir fjórum árum og gerði flotta hluti með KF og Kórdrengjum áður en hann hélt til Frakklands.

Hann sneri aftur til Íslands fyrr á árinu til að ganga til liðs við Þór á Akureyri en þar hefur honum ekki gengið vel að festa sig í sessi í byrjunarliðinu. Þórsarar hafa átt slakt tímabil og eru óvænt í þriðja neðsta sæti, fjórum stigum fyrir ofan fallsvæðið.

Hann hefur því verið lánaður aftur til Fjallabyggðar út tímabilið en KF leikur í 2. deild og er þar fimm stigum fyrir ofan fallsvæðið.

Damak er því kominn aftur heim og verður gaman að fylgjast með honum og liðsfélögunum í Fjallabyggð í 2. deildinni í sumar.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.