Fotbolti.net
15.07.22 - 13:17
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Willum til Go Ahead Eagles (Staðfest) - Beið við landamærin í tíu tíma

Willum til Go Ahead Eagles (Staðfest) - Beið við landamærin í tíu tíma
Canon

Mynd: Go Ahead Eagles

Willum Þór Willumsson er genginn í raðir hollenska félagsins Go Ahead Eagles frá frá hvítrússneska liðinu BATE Borisov. Willum hefur verið kynntur sem nýr leikmaður hollenska félagsins. Hann skrifar undir tveggja ára samning með möguleika á eins árs framlengingu.
Á heimasíðu félagsins ræðir Willum ferðalagið frá Hvíta-Rússlandi. „Fyrst keyrði ég frá Minsk til Varsjá í Póllandi með kærustunni í gær. Það ferðalag tók um fimmtán klukkutíma því við þurftum að bíða í tíu klukkutíma við landamærin. Svo flaug ég frá Varsjá til Amsterdam."

Willum var að koma til Amsterdam í annað sinn á ævinni, í fyrra skiptið var hann að spila við unglingalið Ajax með Breiðabliki í Evrópukeppni unglingaliða. Í gær hélt hann svo áfram og lauk ferðalaginu í Deventer.

„Ég heyrði fyrst um Go Ahead Eagles þegar ég var að spila Football Manager fyrir nokkrum árum. Nafnið á félaginu vekur athygli - verandi hollenskt félag," segir Willum. Hann segir leikstílinn í Hollandi henta sér og að hann sé mjög frábrugðin stílnum á Íslandi og í Hvíta-Rússlandi.

Willum er 23 ára miðjumaður sem uppalinn er hjá Breiðabliki. Eftir tímabilið 2018 samdi hann við BATE þar sem hann hefur verið síðan. Hann var valinn í A-landsliðið í síðasta verkefni en þurfti að draga sig úr hópnum vegna meiðsla.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.