Fotbolti.net
15.07.22 - 17:20
Elvar Geir Magnússon

Yehor Yarmoliuk til Brentford (Staðfest)

Yehor Yarmoliuk.

Yehor Yarmoliuk.

Canon

Mynd: Brentford

Úkraínski miðjumaðurinn Yehor Yarmoliuk er genginn í raðir Brentford frá SC Dnipro-1. Hann gerði þriggja ára samning við Brentford, með möguleika á árs framlengingu.

Yarmoliuk er 18 ára gamall og mun til að byrja með vera í varaliði Brentford.
Yarmoliuk er spennandi leikmaður sem leikið hefur fjölmarga leiki fyrir yngri landslið Úkraínu.

Phil Giles, yfirmaður fótboltamála hjá Brentford, segir að Yehor sé leikmaður sem geti náð langt.

„Hann er miðjumaður sem hefur marga styrkleika, hann getur einnig spilað ofar á vellinum. Hann getur skapað og búið til mörk. Hann er kraftmikill en með góða tækni," segir Giles.

„Það eru erfiðir tímar í Úkraínu og við gefum honum allan stuðning sem hann þarf, innan og utan vallar. Við aðstoðum hann við að verða betri í tungumálinu og sjáum til þess að hann aðlagist vel."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.