Rooney: Ákvarðanir Tuchel kostuðu okkur

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Wayne Rooney, sérfræðingur hjá BBC og fyrrum landsliðsmaður Englands, gagnrýndi Thomas Tuchel, landsliðsþjálfara Englands, eftir að liðið tapaði gegn Argentínu í undanúrslitum á HM í kvöld.
Anthony Gordon kom Englandi yfir snemma í seinni hálfleik. Tuchel gerði þrjár skiptingar og England byrjaði að verja forskotið snemma. Ríkjandi heimsmeistarar Argentínu skoraði tvö mörk undir lokin og tryggði sér sæti í úrslitum gegn Spáni.

TENGT EFNI
Tuchel: Sé ekki eftir neinu
„Þegar við skoruðum fyrsta markið vorum við ekki að leita að öðru markinu. Thomas Tuchel tók ákvarðanir og það er áhætta að taka ákvarðanir. Áhættan var að vera með fimm manna varnarlínu sem leyfði þeim að stjórna leiknum. Ákvarðanir Tuchel kostuðu okkur í kvöld," sagði Rooney.
„Ég gerði sóknarsinnaðar skiptingar í síðustu leikjum. Við reyndum að hjálpa leikmönnunum. Við fengum færi á okkur um leið og við ákváðum að fara í fimm manna varnarlínu því vörnin var of opin. Auðvitað er ábyrgðin á þjálfaranum þegar þetta fer ekki vel, það er auðvelt að segja að ég hafi haft rangt fyrir mér," sagði Tuchel.