Tuchel hefur góða tilfinningu fyrir Rogers - „Færir okkur eitthvað sérstakt"

Mynd: EPA

Mynd: EPA
England mætir Argentínu í undanúrslitum á HM í kvöld. Thomas Tuchel gerir þrjár breytingar á enska liðinu frá sigrinum gegn Noregi í 8-liða úrslitum.
Reece James, Djed Spence og Morgan Rogers koma inn í liðið. Rogers kom inn á sem varamaður gegn Noregi og átti skot sem Jude Bellingham fylgdi á eftir og skoraði sigurmarkið í framlengingunni.
„Þetta er bara tilfinning hjá þjálfaranum," sagði Tuchel um ákvörðunina að setja Rogers í byrjunarliðið.
„Mér líður eins og hann hafi eitthvað sérstakt til að færa okkur í dag. Hann var mjög góður í síðasta leik gegn Noroegi. Hann æfði síðan frábærlega, svo já, þetta er bara tilfinning."