Alex Song, fyrrum leikmaður Arsenal, Barcelona og West Ham hefur gengið til liðs við svissneska úrvalsdeildarfélagið FC Sion.
Hinn 30 ára gamli Song skrifar undir tveggja ára samning við félagið sem eru í fimmta sæti deildarinnar eftir fjóra leiki en liðið spilar í efstu deild í Sviss.
Song hefur æft með Sion undanfarnar vikur áður en gengið var frá félagsskiptunum eftir að hafa yfirgefið Rubin Kazan í Rússlandi. Þessi landsliðsmaður Kamerún spilaði yfir 200 leiki fyrir Arsenal á sínum tíma áður en hann færði sig yfir til Barcelona.
Athugasemdir