Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 15. ágúst 2018 20:30
Ívan Guðjón Baldursson
Everton lánar Vlasic til CSKA Moskvu (Staðfest)
Mynd: Everton
Everton er búið að lána miðjumanninn Nikola Vlasic til CSKA Moskvu út tímabilið.

Vlasic er 20 ára gamall Króati sem spilar framarlega á miðjunni en hann kom við sögu í 19 leikjum Everton á síðasta tímabili og skoraði tvö mörk.

Vlasic var keyptur á 10 milljónir punda í fyrra eftir að hafa verið lykilmaður í liði Hajduk Split í þrjú ár.

Hjá CSKA mun Vlasic spila með Herði Björgvini Magnússyni og félögum sem hafa byrjað tímabilið illa og eru aðeins með tvö stig eftir þrjár umferðir.

CSKA endaði í öðru sæti deildarinnar í fyrra og þarf heldur betur að rétta úr kútnum til að komast aftur í Meistaradeildarsæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner