Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 15. ágúst 2022 13:30
Elvar Geir Magnússon
Giggs skallaði fyrrum kærustu sína og hótaði systur hennar
Giggs mætir fyrir utan dómshúsið.
Giggs mætir fyrir utan dómshúsið.
Mynd: Getty Images
Ryan Giggs skallaði fyrrum kærustu sína og hótaði því að gera það sama við systur hennar. Þetta kom fram í réttarhöldunum yfir þessum 48 ára gamla fyrrum leikmanni Manchester United og fyrrum landsliðsþjálfara Wales.

Giggs var ákærður fyrir að beita fyrrum kærustu sína, Kate Greville, andlegu og líkamlegu ofbeldi. Hann heldur fram sakleysi sínu.

Emma Greville, systir Kate, segir að Giggs hafi sett hendur á axlir systur sinnar og hafi af afli skallað hana í andlitið.

Hún segir að Kate hafi öskrað og fallið til jarðar, Giggs hafi svo sagt við sig að þetta væri hennar sök og hótað að skalla sig líka.

Réttarhöldin hófust í síðustu viku og er búist við því að þau standi allavega yfir út þessa.

Sjá einnig:
Giggs henti kærustunni sinni nakinni úr hótelherbergi
Segir Giggs hafa gert sig að þræli
Athugasemdir
banner
banner
banner