Fotbolti.net
Spáin fyrir enska - 8. sæti

15.08.26

Spáin fyrir enska - 8. sæti

GUÐMUNDUR AÐALSTEINN ÁSGEIRSSON

Við höldum áfram að opinbera spá fréttafólks Fótbolta.net fyrir komandi keppnistímabil í ensku úrvalsdeildinni. Við erum komin í efri hlutann, áttunda sætið en þar er Brighton.
Brighton er aftur komið á Evrópusviðið og leikur í Sambandsdeild Evrópu í aðeins annað sinn í sögu félagsins. Þrátt fyrir það var lokasprettur síðasta tímabils ákveðin vonbrigði, þar sem liðið missti niður sæti í Evrópudeildinni eftir tvö töp í lokaumferðunum og þurfti að treysta á úrslit annarra liða til að tryggja sér Evrópusæti.

Það breytir þó ekki þeirri staðreynd að Brighton er án efa eitt best rekna félag ensku úrvalsdeildarinnar. Félagið hefur endað í efri hluta deildarinnar fjórum sinnum á síðustu fimm tímabilum og heldur áfram að byggja upp lið sitt með skýra stefnu á félagaskiptamarkaðnum. Enn á ný hafa ungir og spennandi leikmenn bæst við hópinn, á meðan reynslumeiri leikmenn á borð við Danny Welbeck, James Milner, Adam Webster og Solly March hafa kvatt.

Stóra spurningin er hvort Brighton ráði við aukið leikjaálag. Reynslan frá síðustu Evrópuferð sýndi að fimmtudagsleikir geta haft áhrif á gengi liðsins í deildinni og breidd leikmannahópsins sætir alvöru prófi. Takist Fabian Hürzeler að dreifa álaginu vel og fá nýju leikmennina fljótt inn í kerfið gæti Brighton aftur blandað sér í baráttuna um efri hluta deildarinnar og jafnvel farið alla leið í Sambandsdeildinni.

Stjórinn: Fabian Hurzeler heldur áfram að vekja athygli sem yngsti stjóri ensku úrvalsdeildarinnar. Þjóðverjinn tók við Brighton aðeins 31 árs gamall og hefur smám saman fest sig í sessi á suðurströndinni með áræðnum og skýrum leikstíl. Ummæli hans um leik Arsenal vöktu athygli á síðasta tímabili og féllu stuðningsmönnum Brighton vel í geð, enda sýndu þau sjálfstraust og metnað. Hürzeler virðist sífellt öruggari í starfi sínu og verkefnið nú er að byggja ofan á góðan grunn, leiða Brighton í gegnum Evrópuævintýri og festa félagið enn frekar í sessi meðal bestu liða ensku úrvalsdeildarinnar.
Spáin fyrir enska - 8. sæti

Mynd: EPA

Leikmannaglugginn: Ferskir leikmenn hafa komið inn á meðan reynslumeiri leikmenn hafa farið út um dyrnar.

Komnir:
Luka Vuskovic frá Tottenham - 46 milljónir punda
Zadok Yohanna frá AIK - 21,5 milljónir punda
Pascal Struijk frá Leeds - 18 milljónir punda
Costinha frá Olympiakos - 11 milljónir punda
Michael Svoboda frá Venezia - 4,3 milljónir punda
Rodrigo Rego frá Benfica - Óuppgefið kaupverð

Farnir:
Jan Paul van Hecke til Tottenham - 52 milljónir punda
Carl Rushworth til Coventry - 22,5 milljónir punda
Diego Coppola til Paris FC - 15,3 milljónir punda
Danny Welbeck til Chelsea - 5 milljónir punda
Jeremy Sarmiento til Middlesbrough - 3,4 milljónir punda
Joël Veltman til West Ham - Á frjálsri sölu
Tommy Watson til Leicester - Á láni
Brajan Gruda til RB Leipzig - Á láni
Adam Webster - Samningur rann út
James Milner - Lagði skóna á hilluna
Solly March - Samningur rann út

Líklegt byrjunarlið
Mynd: FotMob
Spáin fyrir enska - 8. sæti

Mynd: EPA

Lykilmaður: Pascal Gross
Verður áfram einn mikilvægasti leikmaður Brighton þrátt fyrir að vera orðinn 35 ára gamall. Með sífellt yngri leikmannahóp verður reynsla Þjóðverjans enn verðmætari, bæði inni á vellinum og í búningsklefanum. Gross er enn frábær með boltann, les leikinn einstaklega vel og stjórnar tempóinu á miðsvæðinu með yfirvegun og gæðum. Á löngu tímabili með Evrópuleikjum gæti reynsla hans reynst ómetanleg.

Gaman að fylgjast með: Luka Vuskovic
Einn mest spennandi ungi miðvörður Evrópu og gæti orðið næsta stóra uppgötvun Brighton. Króatinn, sem er aðeins 19 ára gamall, kom til félagsins í sumar fyrir félagsmet eftir að hafa slegið í gegn á lánstíma sínum hjá Hamburg í Þýskalandi og unnið sér sæti í króatíska landsliðinu. Brighton samdi við hann til fimm ára og lítur á hann sem lykilmann í framtíðaruppbyggingu félagsins. Tottenham á mögulega eftir að klóra sér í kollinum yfir því að hefa selt þennan leikmann.

Besta og versta mögulega niðurstaða: Með Evrópuleikjunum er besta niðurstaðan að berjast um þessi sæti fyrir neðan Meistaradeildina og vinna á sama tíma Sambandsdeildina. Versta niðurstaðan er sú að Evrópuálagið verði of mikið og Brighton verði rétt fyrir neðan miðja deild.

Þau sem spáðu: Arngrímur Alex Birgisson, Elíza Gígja Ómarsdóttir, Elvar Geir Magnússon, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Hafþór Örn Laursen, Haraldur Örn Haraldsson, Ívar Björgvinsson, Jóhann Þór Hólmgrímsson, Kári Snorrason, Mate Dalmay, Snæbjört Pálsdóttir, Stefán Marteinn Ólafsson, Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke.
Spáin fyrir enska - 8. sæti

Mynd: EPA

Liðin fengu eitt stig og upp í 20 eftir það hvar hver og einn spáði þeim. Liðið í síðasta sæti fékk eitt stig, liðið í 19. sæti tvö stig og koll af kolli. Stigin í spánni tengjast á engan hátt stigafjölda liðanna í deildinni..

Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. ?
8. Brighton, 166 stig
9. Bournemouth, 135 stig
10. Newcastle, 128 stig
11. Everton, 123 stig
12. Brentford, 111 stig
13. Crystal Palace, 101 stig
14. Leeds United, 95 stig
15. Fulham, 90 stig
16. Nottingham Forest, 85 stig
17. Sunderland, 78 stig
18. Coventry City, 42 stig
19. Ipswich Town, 32 stig
20. Hull City, 14 stig
Spáin fyrir enska - 8. sæti

Mynd: Brighton

Fleiri fréttir

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.