15.08.26 - 13:08
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Stefan Tufegdzic á leið í Malmö

Mynd: Aðsend

Mynd: Aðsend
Stefan Tufegdzic er samkvæmt heimildum Fótbolta.net á leið til Malmö. Hann er að koma frá Val þar sem hann hefur leikið með yngri flokkum félagsins, en er ekki samningsbundinn félaginu.
Stefan er fæddur árið 2010 og fagnar 16 ára afmælisdeginum í dag!
Stefan er fæddur árið 2010 og fagnar 16 ára afmælisdeginum í dag!
Stefan er sonur Srdjan Tufegdzic (Túfa), fyrrum þjálfara Vals, sem starfaði síðast hjá Värnamo í Svíþjóð. Yngri bróðir Stefans, Novak, hefur einnig verið undir smásjá sænska stórliðsins, en Novak er fæddur 2012 og varð fyrr í sumar yngsti leikmaður til að spila í Bestu deildinni. Bræðurnir hafa báðir æft með Rauðu Stjörnunni í Serbíu.
Fótbolti.net sagði frá því í febrúar að Stefan hefði verið á reynslu hjá Malmö.
Stefan er sóknarmaður sem spilaði í sumar sinn fyrsta keppnisleik fyrir aðallið Vals í þegar hann kom inn á gegn Fram í Bestu deildinni. Hann hefur skorað 21 mark í 26 leikjum með 2. og 3. flokki á þessu ári.
Hjá Malmö er Alexander Ingi Arnarsson (2008) í U19 liði félagsins og Daníel Tristan Guðjohnsen (2006) er í aðalliðshópnum.

TENGT EFNI