Baldur Sig: Við förum ekki overboard
Auglýsing

Baldur hampar bikarnum í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Baldur hampar bikarnum í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Maður er aðeins að átta sig á þessu,\" sagði Baldur Sigurðsson, fyrirliði Stjörnunnar, eftir að liðið var bikarmeistari í fyrsta skipti í kvöld með sigri á Breiðabliki eftir vítaspyrnukeppni.
Baldur varð í kvöld bikarmeistari með sínu þriðja félagi en þetta var fimmti bikarmeistaratitill hans.
„Þessi er virkilega sætur. Það er búinn að vera langur aðdragandi að þessu, tvær vikur í pásu. Það er búið að tala mikið um að við séum sigurstranglegri. Við erum pínu að skrifa söguna og það er ótrúlega gaman.\"
Stjörnumenn fagna í kvöld áður en þeir snúa sér að leiknum gegn KA á miðvikudaginn í 20. umferð Pepsi-deildarinnar.
„Maður verður alltaf að fagna sigrum. Við förum ekki overboard, það er leikur á miðvikudaginn. Þegar þú ert að vinna eitthvað í fyrsta skipti í sögunni þá verður þú að fagna því,\" sagði Baldur að lokum.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.