Ruben Amorim til Man City? - Alphonso Davies á óskalista Man Utd - Verðmiðinn á Antony - Barcelona á eftir tveimur leikmönnum Chelsea
banner
   þri 15. október 2024 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Sandra áfram hjá ÍBV
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Lettneska landsliðskonan Sandra Voitane hefur framlengt samning sinn við ÍBV til næstu tveggja ára en þetta kemur fram í tilkynningu Eyjaliðsins.

Sandra er 25 ára fjölhæfur leikmaður sem hefur spilað tvö tímabil með ÍBV.

Hún kom fyrst til landsins árið 2022 og spilaði þá með ÍBV í efstu deild, en skipti yfir í Keflavík á síðasta ári. Sandra snéri aftur til ÍBV og lék með liðinu í Lengjudeildinni í sumar þar sem hún spilaði í hjarta varnarinnar.

Alls hefur hún spilað 32 deildarleiki með ÍBV og skorað þrjú mörk.

Sandra hefur nú framlengt samning sinn við ÍBV næstu tvö árin eða út 2026.

Þessi öfluga fótboltakona á 63 A-landsleiki að baki með Lettlandi og skorað 15 mörk.
Athugasemdir
banner
banner
banner