Atli Freyr Ottesen Pálsson er genginn í raðir Njarðvíkur frá Víði Garði. Þetta var tilkynnt í gærkvöldi.
Atli er fyrsti leikmaðurinn sem Njarðvík fær eftir að síðasta tímabili lauk, og fyrsti leikmaðurinn sem Mikael Nikulásson, nýráðinn þjálfari Njarðvíkur, fær til félagsins.
Atli Freyr þekkir vel til í Njarðvík eftir að hafa leikið með félaginu 2017 og 2018.
„Við bjóðum Atla Frey velkomin í okkar raðir á ný," segir í tilkynningu Njarðvíkur.
Njarðvík féll úr Inkasso-deildinni síðasta sumar og leikur í 2. deild næsta sumar.
Athugasemdir