Fotbolti.net
15.12.19 - 19:54
Ívan Guðjón Baldursson

Guardiola: Spiluðum betur í tapinu gegn Man Utd

Guardiola: Spiluðum betur í tapinu gegn Man Utd
Canon

Mynd: Getty Images

Manchester City lenti ekki í vandræðum á útivelli gegn Arsenal í ensku úrvalsdeildinni fyrr í dag. Josep Guardiola var ánægður með sigurinn en taldi frammistöðu sinna manna ekki vera sérstaka. Þeir mættu andlausum Arsenal mönnum sem hafa átt hörmulegan fyrri hluta tímabils.
Kevin De Bruyne skoraði tvö og Raheem Sterling gerði eitt og var staðan 0-3 í leikhlé. Meira var ekki skorað og þægilegur sigur Englandsmeistaranna staðreynd.

„Við náðum í ótrúleg úrslit en við vorum samt betri í síðasta leik gegn Manchester United. Ég veit að við erum dæmdir útfrá úrslitum en það er mín skylda að meta frammistöðuna, ekki bara lokatölurnar," sagði Josep Guardiola að leikslokum.

Man City minnkar bilið á milli sín og Leicester með þessum sigri og eykur bilið frá Chelsea sem situr í fjórða sæti eftir fjórða tapleikinn í síðustu fimm.

City er fjórum stigum á eftir Leicester og sex stigum á undan Chelsea. Liverpool trónir á toppinum með fjórtán stiga forystu á City.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.