Fotbolti.net
16.01.18 - 22:19
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Rúnar Páll: Við eigum ekki séns

Auglýsing
Rúnar Páll var léttur eftir sigur á ÍA í Fótbolta.net mótinu í kvöld.

Rúnar Páll var léttur eftir sigur á ÍA í Fótbolta.net mótinu í kvöld.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Það er mjög gott að fá þessa leiki,\" sagði Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Stjörnunnar eftir 2-0 sigur á ÍA í Fótbolta.net mótinu í kvöld.
Sóknarmaðurinn Hólmbert Aron Friðjónsson er farinn í atvinnumennsku til Álasunds í Noregi. Það er mikill missir fyrir Stjörnuna að mati Rúnars.

„Þetta er fyrst og fremst frábært fyrir Hólmbert. Hann gerði fína hluti fyrir okkur. Vonandi gengur honum sem best þarna úti í Álasundi,\" sagði hann.

„Það er að sjálfsögðu missir fyrir okkur að missa leikmenn eins og Hólmbert, sem skoraði 10, 11 mörk í fyrrasumar. En það kemur maður í manns stað.\"

Stjarnan samdi við Guðmund Stein Hafsteinsson í síðustu viku. Hann kemur til með að fylla skarð Hólmberts að einverju leyti.

„Guðmundur skoraði átta mörk í 16 eða 17 leikjum með Víkingi Ólafsvík og við teljum að hann geti styrkt okkur og leyst Hólmbert af hólmi með sínum leik.\"

Valur og FH hafa farið hamförum á leikmannamarkaðnum í vetur. Á Stjarnan einhver séns í þessi lið? „Við eigum ekki séns,\" sagði Rúnar Páll léttur í bragði við því.

„Það er fínt hjá þeim. Það er yfirleitt þannig að okkur er spáð þokkalegu gengi og það heldur væntanlega áfram.\"

Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.