16.01.20 - 18:52
Ívan Guðjón Baldursson
Birkir Bjarnason skrifar undir hjá Brescia á morgun

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Ítölsku fallbaráttuliðin eru að berjast um Birki Bjarnason um þessar mundir og er útlit fyrir að hann sé að ganga í raðir Brescia, þar sem hann mun leika með Mario Balotelli og Sandro Tonali.
Gianluca Di Marzio greinir frá þessu á vefsíðu sinni. Útlit var fyrir að Birkir myndi ganga í raðir Genoa en samningar náðust ekki. Nýliðar Brescia létu þetta tækifæri ekki framhjá sér fara en félög á borð við Toulouse og New York City hafa einnig sýnt Birki áhuga síðustu daga.
Því er haldið fram að Birkir gangist undir læknisskoðun strax á morgun, föstudag, og skrifi svo undir sex mánaða samning með möguleika á eins árs framlengingu.
Brescia er búið að skipta tvisvar sinnum um þjálfara á leiktíðinni og situr í næstneðsta sæti með 14 stig eftir 19 umferðir. Þar er liðið í harðri fallbaráttu við Lecce, Genoa og SPAL.