Fotbolti.net
16.01.20 - 12:30
Magnús Már Einarsson

ESPN: Man Utd búið að semja við Fernandes

ESPN: Man Utd búið að semja við Fernandes
Canon

Mynd: Getty Images

Manchester United hefur náð samkomulagi um kaup og kjör við Bruno Fernandes, miðjumann Sporting Lisabon, en ESPN segir frá þessu í dag.

Manchester United og Sporting Lisabon eiga hins vegar eftir að ná samkomulagi um kaupverð.

Manchester United vill kaupa Fernandes á 60 milljónir evra (51 milljón punda) en Sporting vill fá 80 milljónir evra (68 milljónir punda) fyrir leikmanninn.
Hinn 25 ára gamli Fernandes vill sjálfur fara til United en hann vonast til að hægt verði að ganga frá félagaskiptunum á næstu tveimur vikum.

Fernandes hefur verið frábær með Sporting undanfarin ár en hann á 19 landsleiki að baki með Portúgal.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.