Leifur Andri Leifsson og Hörður Árnason. Leifur leysti vinstri bakvarðarstöðuna í leiknum í gær en Hörður lék í bakverðinum á síðustu leiktíð.
HK tapaði í gær 1-2 gegn Grindavík í Lengjubikarnum. Leikið var í Kórnum og spjallaði Fótbolti.net við Brynjar Björn Gunnarsson, þjálfara HK, að leik loknum.
Sjá einnig:
Brynjar Björn: Frábært að fá Gumma Júl til baka
Brynjar um ólöglegan leikmann: Gengum út frá því að allir hefðu verið á láni
Sjá einnig:
Brynjar Björn: Frábært að fá Gumma Júl til baka
Brynjar um ólöglegan leikmann: Gengum út frá því að allir hefðu verið á láni
Brynjar var spurður út í leikmannamarkaðinn. Hvar ætlar HK að styrkja sig fyrir átökin í Pepsi Max-deildinni á komandi leiktíð?
„Við erum að leita að leikmanni í vinstri bakvörðnn, sennilega augljóst," sagði Brynjar við Fótbolta.net í gær. Hörður Árnason lagði skóna á hilluna eftir tímabilið í fyrra og leitar HK að styrkingu í bakvörðinn.
„Við erum svo að leita að þrem, fjórum styrkingum fyrir utan vinstri bakvörðinn," bætti Brynjar við.
Athugasemdir