Karólína Lea Vilhjálmsdóttir er nafn sem fylgendur fótbolta á Íslandi ættu að leggja á minnið.
Hún er fædd árið 2001 og leikur með FH í Pepsi deildinni. Karólína kom inná í sínum fyrsta leik gegn ÍA á laugardag.
Þessi efnilega stelpa gerði sér svo lítið fyrir og skoraði eftir aðeins níu mínútur inni á vellinum en hún komst þá ein gegn Ástu Vigdísi, markmanni ÍA og skoraði eins og reyndur framherji í efstu deild.
Eins og áður segir, voru þetta hennar fyrstu mínútur í efstu deild á Íslandi en hún á tvo leiki með U-17 ára landsliðinu og hefur hún skorað í þeim eitt mark.
Þess má geta að hún er frænka Gylfa Þórs Sigurðssonar og þarf því ekki að fara langt til að finna hæfileika í fjölskyldunni..
Athugasemdir