Fotbolti.net
16.05.17 - 21:59
Kristófer Kristjánsson

Elín Metta: Nóg eftir af þessu móti

Auglýsing
Elín Metta Jensen skoraði mark Vals í kvöld

Elín Metta Jensen skoraði mark Vals í kvöld

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Elín Metta Jensen skoraði eina mark Vals í kvöld er liðið tapaði 1-3 á Hlíðarenda gegn Íslandsmeisturum Stjörnunnar í Pepsi-deild kvenna í kvöld en hún var að vonum svekt með úrslitin.
„Manni líður ekki vel eftir svona leiki það er alveg ljóst.\"

Valsara komu grimmir til leiks í seinni hálfleik og jafnaði Elín á 47. mínútu áður en gestirnir svöruðu með tveimur mörkum á stuttum kafla sem gerði útaf við leikinn.

„Ég kann enga skýringu á því hvað gerðist, mér fannst við frekar góðar í þessum leik en það er eitthvað einbeitingarleysi sem á sér stað og þá hrinur þetta smá.\"

„Ég vil bara halda áfram og taka einn leik í einu, það er nóg eftir af þessu móti og mér finnst ekki hægt að afskrifa eitt né neitt.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.