Fotbolti.net
16.05.19 - 21:50
Kristófer Jónsson

Óli Jó: Búnir að bíða eftir þessu

Auglýsing
Óli hafði engan áhuga að ræða um Gary Martin

Óli hafði engan áhuga að ræða um Gary Martin

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrsti sigur Íslandsmeistara Vals kom á Wurth-vellinum í Árbænum gegn Fylki í dag en leiknum lauk með 1-0 sigri Vals.

„Við erum búnir að bíða í smá tíma eftir þessu og það kom í dag. Fylkisliðið er frábært lið með góða leikmenn og við höfum áður verið í basli með þá og ég er því ánægður að vinna þá hér í dag." sagði Ólafur Jóhannesson, þjálfari Vals, eftir leik.
Valsarar hafa mikið verið í umræðunni undanfarið og ekki síst vegna Gary Martin, en hann er ekki hluti af plönum félagsins lengur. Óli tók skýrt fram við fjölmiðla eftir leik að hann hafði engan áhuga að ræða um neitt annað en leikinn í dag og bannaði þá einnig fjölmiðlum að spyrja leikmenn útí málið.

Valsmenn misstu tvo leikmenn útaf meidda en það voru þeir Lasse Petry og Andri Adolphsson.

„Lasse fór á spítala í hálfleik í sjúkrabíl og Andri er eitthvað að skakklappast og við þurfum að taka stöðuna á því."

Nánar er rætt við Óla í spilaranum að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.