Diogo Jota, leikmaður Liverpool, mun ekki spila meira á þessu tímabili vegna meiðsla.
Þetta staðfesti Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, í dag fyrir leik Liverpool og West Brom sem hefst klukkan 15:30.
Jota hefur komið sterkur inn í lið Liverpool á tímabilinu en hann kom frá Wolves síðasta sumar.
Þeir rauðklæddu eru í harðri baráttu um Meistaradeildarsæti og eiga þrjá leiki eftir í deild þegar þetta er skrifað.
Jota mun ekki taka þátt í neinum af þeim leikjum gegn West Brom, Burnley og svo Crystal Palace.
Athugasemdir