Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   sun 16. maí 2021 14:05
Victor Pálsson
Kærasta Abraham brjáluð út í Tuchel - „Hlýtur að vera brandari"
Mynd: Getty Images
Leah Monroe, kærasta Tammy Abraham, lét Thomas Tuchel, stjóra Chelsea, heyra það á Instagram í gær.

Abraham var ekki í leikmannahóp Chelsea gegn Leicester er liðið tapaði 1-0 í úrslitaleik enska bikarsins.

Abraham er markahæsti leikmaður Chelsea á tímabilinu en hann var þrátt fyrir það ekki valinn í hóp Tuchel eins og áður hefur gerst.

Þjóðverjinn virðist ekki vera hrifinn af enska landsliðsmanninum sem gæti vel verið á förum frá Chelsea í sumar.

Olivier Giroud var á meðal varamanna Chelsea og kom hann inná er liðið tapaði leiknum.

„Hvernig í ósköpunum tekurðu þá ákvörðun að velja markahæsta leikmann liðsins ekki í hópinn fyrir úrslitin?!?" skrifaði Monroe.

„Sá sami sem skoraði mörkin til að komast svo langt í keppninni. Það er ekkert vit í þessu. Ekki einu sinni á bekknum? Þetta hlýtur að vera brandari."
Athugasemdir
banner
banner
banner