Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 16. maí 2021 19:01
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Klopp: Síðasta vikan á tímabilinu verður spennandi
Mynd: EPA
„Þessi leikur er bara eins og tímabilið okkar hefur verið," sagði Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, eftir dramatískan sigur á West Brom í dag.

Markvörðurinn Alisson skoraði sigurmarkið í leiknum seint í uppbótartímanum.

„Það var mikið af góðum hlutum, þeir fóru illa með okkur fyrstu mínúturnar og svo urðum við að vinna eins og brjálæðingar. Við héldum áfram að spila fótbolta og það er virkilega erfitt gegn þessum liðum, hvernig þeir verjast, hvernig þeir stilla upp og á endanum þurfum við Alisson til að bjarga okkur."

„Þetta var frábær skalli. Ég hef aldrei séð annað eins, mjög góð tækni."

Þetta var gríðarlega mikilvægur sigur fyrir Liverpool sem er núna einu stigi frá Meistaradeildarsæti. „Við erum enn í kapphlaupinu. Við verðum að berjast og næsta fimmtudagur er annar slagur."

„Síðasta vikan á tímabilinu verður spennandi."
Athugasemdir
banner
banner
banner