Fotbolti.net
16.05.23 - 08:20
Ívan Guðjón Baldursson

Bielsa tekinn við Úrúgvæ (Staðfest)

Bielsa tekinn við Úrúgvæ (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Úrúgvæska landsliðið er búið að tilkynna ráðningu Marcelo Bielsa sem nýs landsliðsþjálfara. Hann gerir þriggja ára samning sem gildir fram að HM 2026.

Bielsa er frægur þjálfari frá Argentínu sem verður 68 ára gamall í sumar. Hann var síðast við stjórnvölinn hjá Leeds United í fjögur ár en þar áður stýrði hann meðal annars Velez Sarsfield, Athletic Bilbao og Lille. 

Bielsa býr yfir gríðarlega mikilli reynslu sem landsliðsþjálfari þar sem hann stýrði Argentínu í sex ár frá 1998 til 2004 og Síle í fjögur ár frá 2007 til 2011.

Það verður áhugavert að fylgjast með gengi Bielsa hjá Úrúgvæ en hann var með 65,9% sigurhlutfall við stjórnvölinn hjá Argentínu og 54,9% hjá Síle.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.