Fotbolti.net
16.06.21 - 13:01
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Arnautovic í eins leiks bann fyrir að móðga andstæðing

Arnautovic í eins leiks bann fyrir að móðga andstæðing
Canon

Mynd: EPA

Powerade
Marko Arnautovic, einn af markaskorurum Austurríkis, hefur verið dæmdur í eins leiks bann og missir því af næsta leik Austurríkis í riðlakeppni EM.

Arnautovic virtist þurfa að losa um einhverja innbygða reiði þegar hann fagnaði marki sínu gegn Norður-Makedóníu á sunnudag.
Arnautovic byrjaði á bekknum í leiknum og hafa einhverjir velt því fyrir sér hvort reiðin liggi í þeirri ákvörðun landsliðsþjálfarans að byrja með kappann á bekknum.

Hann sagði óheppilega hluti í garð Ezgjan Alioski, leikmanns Norður-Makedóníu og var David Alaba, fyrirliði Austurríkis, fljótur að reyna stöðva liðsfélaga sinn áður en hann reyndi að segja meira.

Leikurinn sem Arnautovic missir af er gegn Hollandi annað kvöld.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.