Arnar Viðars ráðinn þjálfari U21 liðs Gent (Staðfest)

Arnar Þór Viðarsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnar Þór Viðarsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnar Þór Viðarsson hefur verið ráðinn til starfa hjá belgíska félaginu Gent þar sem hann mun þjálfa U21 liðið. Arnar var fyrr á árinu rekinn frá KSÍ þar sem hann var þjálfari A-landsliðs Íslands.
„Það hefur alltaf verið draumur minn að vinna fyrir toppfélag í Belgíu svo ég er stoltut og ánægður. Síðasta skrefið fyrir leikmanninn, frá unglingaliðinu og upp í aðalliðið, er oft það erfiðasta og ég vil hjálpa mönnum að taka það skref," segir Arnar við heimasíðu Gent.
Aðallið Gent hafnaði í fimmta sæti belgísku úrvalsdeildarinnar á liðnu tímabili en liðið varð Belgíumeistari 2015.
Arnar hefur lengi búið í Belgíu en þar lék hann á atvinnumannaferlinum og stýrði svo Cercle Brugge og var bráðabirgðastjóri hjá Lokeren. Viktor Nói Viðarsson, sonur Arnars, er í unglingaliði Gent.
Hann tók við U21 landsliði Íslands 2019 og svo ári seinna við A-landsliðinu en hann starfaði einnig sem yfirmaður fótboltamála hjá KSÍ.

???????????????????????????????????? ???????????????????? ????
— KAA Gent (@KAAGent) June 16, 2023
De ex-bondscoach van IJsland komt mee onze jeugdwerking versterken.
MEER | https://t.co/SXIbUtlgv1 pic.twitter.com/1Y8ZIGZ4hn