Árni: Þetta verður að vígi okkar


Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir


Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

„Þetta verður að vera vígi okkur Norðurálsvöllurinn,“ sagði Árni Marinó Einarsson, markvörður ÍA, eftir 6-3 sigur gegn Þrótti í sjöundu umferð Lengjudeildar karla í kvöld.
ÍA náði sínum fyrsta heimasigri í sumar í kvöld. Árni var því mjög ánægður með sigurinn.
„Það er bara gríðarlega góð tilfinning. MIkilvægt að ná í þrjú stig hérna heima, við þurfum að halda því áfram.“
Það vantaði ekki upp á mörkin í þessum leik. Árni hefði þó viljað fá færri mörk á sig.
„Það er alltaf gott að skora mörk en það er líka alltaf leiðinlegt að fá á sig mörk. Ég hefði viljað fá á mig aðeins færri mörk en við unnum leikinn.“
Um þessar mundir er U-21 landsliðið að spila vináttulandsleiki erlendis. Árni var ekki valinn í hópinn að þessu sinni.
„Auðvitað vill maður alltaf vera valinn. Ég tel mig vera nógu góðan til þess. Þegar maður er ekki valinn þá leggur maður bara harðar á sig.“
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.




