Fotbolti.net
16.06.23 - 16:00
Elvar Geir Magnússon

Dahoud til Brighton (Staðfest)

Dahoud til Brighton (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Þýski miðjumaðurinn Mahmoud Dahoud verður leikmaður Brighton í sumar en hann kemur á frjálsri sölu frá Borussia Dortmund.

Dahoud e 27 ára og fæddist í Sýrlandi en hann hefur gert fjögurra ára samning við enska úrvalsdeildarfélagið.
Brighton hefur einnig fengið til sín brasilíska sóknarleikmanninn Joao Pedro frá Watford og miðjumanninn reynslumikla James Milner frá Liverpool í þessum glugga.

„Ég er viss um að Mahmoud verði toppleikmaður fyrir okkur. Ég er spenntur að fá hann. Ég reyndi að fá hann þegar ég var með Sassuolo," segir Roberto de Zerbi, stjóri Brighton.

Dahoud á tvo landsleiki fyrir Þýskalandi og lék alls 141 leik fyrir Dortmund en liðið hafnaði í öðru sæti þýsku Bundesligunnar á liðnu tímabili.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.