Fotbolti.net
16.06.23 - 14:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Smalling framlengir við Roma (Staðfest) - Aldrei spilað betur

Ánægður í Róm

Ánægður í Róm

Canon

Mynd: Getty Images

Chris Smalling, sem sagðist í vetur vilja klára ferilinn í Róm, hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Roma.

Hann hefur verið í viðræðum við félagið í talsverðan tíma og í dag var tilkynnt að enski miðvörðurinn væri búinn að skrifa undir nýjan samning.
Smalling er 33 ára gamall og kom fyrst á láni til Roma árið 2019, þá á árs lánssamningi. Í kjölfarið gekk hann í raðir Roma og skrifaði undir þriggja ára samning sem hefði runnið út í lok mánaðar.

„Að vera áfram hjá Roma var auðveld ákvörðun. Ég er að spila minn besta fótbolta á ferlinum og mér og fjölskyldunni hefur liðið vel í þessari dásamlegu borg frá fyrsta degi. Ofan á það er félagið að taka skref fram á við.

Smalling er lykilmaður í liði Roma og hjálpaði liðinu að vinna Sambandsdeildina fyrir ári síðan. Liðið fór alla leið í úrslitaleik Evrópudeildarinnar í vetur en tapaði þar í vítaspyrnukeppni gegn Sevilla. Smalling er uppalinn hjá Millwall og Maidstone United og steig sín fyrstu skref í úrvalsdeildinni hjá Fulham áður en hann var keyptur til Man Utd.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.