Stefan Ljubicic: Er allavega búinn að jafna metið mitt

Stefan Ljubicic framherji Keflavíkur

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Stefan Ljubicic framherji Keflavíkur

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson
Keflavík tók á móti Fram í lokaleik 13. umferðar Bestu deild karla sem fram fór á HS Orku vellinum í kvöld.
Keflavík hafa verið að sækja sterk stig að undanförnu og náðu með stiginu í kvöld að lyfta sér upp í efri hluta deildarinnar.
„Fínt að ná í allavega stig, mér fannst við átt meira skilið" sagði Stefan Alexander Ljubicic framherji Keflavíkur eftir jafnteflið í kvöld.
„Við fáum á okkur þetta klaufalega mark í byrjun eins og á móti KR síðast þannig það er mjög súrt en við náðum svo þessu marki sem var mjög fínt og gátum alveg stolið þessu líka"
Það var mjög jafnt með liðunum í kvöld en hvað var það sem vantaði til þess að fara með öll stigin?
„Kannski bara að spila fyrir liðið aðeins. Ég veit að allir vilja skora og allt það en stundum þarf maður líka bara að vera óeigingjarn en það er allt í lagi"
„Ég myndi líka sem framherji alltaf skjóta í sömu stöðum þannig þetta er allt í lagi og bara áfram gakk. Við áttum nóg af sénsum til þess að gera eitthvað en það var fínt að ná allavega í stig"
Stefan Ljubicic skoraði sitt sjötta mark í deildinni í sumar og jafnaði um leið sinn besta árangur í efstu deild á einu tímabili.
„Það er að spilast vel ef ég er að horfa í einstaklings tölfræðina en mig langar ekkert að vera elta eitthvað. Ég er allavega búin að jafna núna metið mitt sem ég var með síðast þegar ég var í efstu deild, það eru sex mörk þannig það er gott að jafna það og með nóg af leikjum inni"
„Svo lengi sem að við eru að ná í stig og vinna leiki þá er þetta bara geggjað" sagði Stefan Ljubicic.
Nánar er rætt við Stefan Ljubicic í spilaranum hér fyrir ofan.
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 14 | +39 | 40 |
| 2 | KR | 14 | +14 | 29 |
| 3 | Fram | 13 | +7 | 27 |
| 4 | Breiðablik | 13 | +7 | 22 |
| 5 | Valur | 14 | -3 | 19 |
| 6 | Keflavík | 13 | -6 | 16 |
| 7 | Stjarnan | 14 | -3 | 15 |
| 8 | ÍBV | 13 | -4 | 15 |
| 9 | ÍA | 13 | -8 | 15 |
| 10 | KA | 13 | -9 | 10 |
| 11 | FH | 13 | -13 | 8 |
| 12 | Þór | 13 | -21 | 8 |


