Sex umferðum er lokið í Pepsi Max-deildinni og mótið komið vel af stað. Fótbolti.net tók saman átta manna lista með leikmönnum sem eiga meira inni. Hér að neðan má sjá listann í stafrófsröð.
Damir Muminovic (Breiðablik) - Hefur ekki spilað jafn vel og oft áður í vörn Blika sem hafa fengið mörg mörk á sig að undanförnu.
Davíð Örn Atlason (Víkingur R.) - Hefur ekki náð sama flugi og í fyrra. Meiðsli hafa sett strik í reikninginn.
Hallgrímur Mar Steingrímsson (KA) - Hefur dregið vagninn í sóknarleik KA undanfarin ár. Skoraði tíu mörk í fyrra en er ekki búinn að skora í ár.
Haukur Páll Sigurðsson (Valur) - Fyrirliðinn hefur verið í sókndjarfara hlutverki en oft áður á miðjunni og á meira inni.
Athugasemdir