Fotbolti.net
16.07.22 - 07:40
Ívan Guðjón Baldursson

Alderweireld til Antwerp á þriggja ára samning (Staðfest)

Alderweireld til Antwerp á þriggja ára samning (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Belgíski miðvörðurinn Toby Alderweireld er búinn að skrifa undir þriggja ára samning við Royal Antwerp í heimalandinu.

Alderweireld er 33 ára gamall og gerði garðinn frægan sem leikmaður Tottenham þar sem hann spilaði 236 leiki á sex árum. Varnarmaðurinn varði síðasta ári hjá Al-Duhail sem endaði í öðru sæti í efstu deild í Katar auk þess að rúlla yfir riðilinn sinn í Meistaradeild Asíu.

Miðvörðurinn á yfir 120 landsleiki að baki fyrir Belgíu og er búinn að spila þrjá landsleiki á þessu ári.

Antwerp endaði í fjórða sæti belgísku deildarinnar á síðustu leiktíð og er meðal annars með Radja Nainggolan, Vincent Janssen og Ritchie De Laet í leikmannahópnum.

Marc Overmars er yfirmaður íþróttamála hjá félaginu, sem er sama staða og hann gegndi á tímum Alderweireld hjá Ajax.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.