16.07.22 - 09:15
Ívan Guðjón Baldursson
Arturo Vidal til Flamengo (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Brasilíska félagið Flamengo er búið að staðfesta komu miðjumannsins Arturo Vidal á frjálsri sölu frá Inter.
Vidal rifti samningnum við Inter og tekur á sig launalækkun til að ganga til liðs við Flamengo.
Vidal snýr aftur til Suður-Ameríku eftir 15 sigursæl ár í Evrópu þar sem hann vann ógrynni titla með Juventus, FC Bayern, Barcelona, Inter og landsliði Síle.
Þessi ótrúlegi miðjumaður hefur unnið efstu deild níu sinnum á síðustu ellefu árum.
Vidal er 35 ára gamall og skrifar undir eins og hálfs árs samning við Flamengo sem gildir út desember 2023.
