Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 16. júlí 2022 16:23
Brynjar Ingi Erluson
Barcelona kaupir Lewandowski frá Bayern (Staðfest)
Robert Lewandowski semur við Barcelona
Robert Lewandowski semur við Barcelona
Mynd: EPA
Spænska félagið Barcelona hefur staðfest samkomulag við Bayern um kaup á pólska framherjanum Robert Lewandowski en hann skrifar undir fjögurra ára samning við Börsunga.

Barcelona og Bayern náðu munnlegu samkomulagi um Lewandowski í gær og greiðir spænska félagið 50 milljónir evra fyrir leikmanninn.

Lewandowski æfði með Bayern í morgun og kvaddi þar liðsfélaga sína en hann mun ferðast til Bandaríkjanna á morgun og hitta leikmannahóp Barcelona.

Pólski framherjinn er 33 ára gamall og eytt síðustu átta árum hjá Bayern þar sem hann vann allt sem hægt er að vinna hjá félagsliði. Hann hefur verið langbesti sóknarmaður heims síðustu ár og verið kjörinn besti leikmaður heims af FIFA síðustu tvö ár.

Lewandowski gerir fjögurra ára samning við Börsunga en félagið staðfesti þessi tíðindi í dag.


Athugasemdir
banner
banner
banner